Um okkur

Gunnar H. Kristjánsson

Gunni brunaverkfræðingur er framkvæmda- og verkefnastjóri og einn reyndasti brunahönnuður landsins en hann hefur komið að hátt í 5000 ráðgjafarverkefnum á sínum starfsferli sem spannar yfir 30 ár. Gunni er fljótur að greina kjarnann frá hisminu í brunavörnum og hefur ávallt lagt áherslu á praktískar og hagkvæmar lausnir fyrir sína umbjóðendur og er ekki fyrir að flækja málin.

Gunni er að rembast við að lækka forgjöfina í golfi en hefur allt of mikið af gera svo það takist. Fjöldskyldan er með í þessu enda er golfið gríðargott sport fyrir bæði sál og líkama.  

Netfang: brunahonnun@brunahonnun.com
Sími 662 5990

Einar I. Ólafsson

Einar er byggingarverkfræðingur og annar af fulltrúum ungu kynslóðarinnar í fyrirtækinu enda tölvufær með afbrigðum. Hann gerir flóknar brunahermanir, rýmingarhermanir og rýmingaráætlanir auk þess sem hann hannar vatnsúðakerfi og misturkerfi sem hann teiknar í Revit. 
Einar hefur góða reynslu af verklegum framkvæmdum í gegnum verktaka- og smíðafyrirtækið Friðrik Jónsson ehf á Króknum. 

Einar sinnir um þessar mundir nýjum arftaka heima fyrir enda algjör ljúflingur. Einar er auk þess mikill áhugamaður um Tindastól í körfubolta. 

Netfang: einar@brunahonnun.com
Sími 861 9852

Sigurður Páll Stefánsson

Siggi er efnaverfræðingur að mennt en hefur sinnt smíðum á sumrin síðustu 9 ár og hefur því góðan skilning á því hvernig verkefni eru unnin í mörkinni sem við teljum gríðarlegan kost. Siggi er hæfilegur sveitamaður af Króknum og traustari maður er vandfundinn.

Hann er fyrrum þriggja stiga skytta úr körfunni og er því “spot on”. Siggi vinnur við brunatæknilegar úttektir, brunahönnun, greinargerðir brunavarna, gæðamál og sinnir ráðgjöf til arkitekta, húseigenda og verktaka á sviði brunavarna. Siggi er frábær liðsmaður í teyminu okkar og dregur hvergi af sér.

Netfang: siggi@brunahonnun.com
Sími 865 6625

Sigmundur Eyþórsson

Simmi er brunatæknifræðingur og reynslubolti úr slökkviliðageiranum með áratuga reynslu, enda var hann slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja í 13 ár og verkefnastjóri og staðgengill byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar í 14 ár. Simmi framkvæmir mælingar á vatnsveitum sem er hönnunarforsenda slökkvikerfa ásamt því að gera greiningar á vatnsöflun til slökkvistarfa. Hann hefur eftirlit með hönnun og uppsetningu ýmissa brunavarnakerfa svo sem vatnsúðakerfa, misturkerfa og framkvæmir viðtöku- og skilaúttektir fyrir kerfin. Auk þess sinnir Simmi ástandsskoðunum á brunavörnum mannvirkja og au þess að gera rýmingaráætlanir.

Simmi er þúsundþjala smiður og stundar smíðar í frístundum auk þess að vera trillukarl á strandveiðum á sumrin. 

Netfang: simmi@brunahonnun.com
Sími 894 6716