ÚTEKTIR

VSÓ

Við eigum langa og farsæla sögu í verkefnum með VSÓ Ráðgjöf enda búnir að vinna náið með þeim í yfir 20 ár í fjölmörgum verkefnum. Nýjasta verkefnið er samgöngumiðstöðin í Skarfabakka fyrir Faxaflóahafnir sem hefur verið gríðarskemmtilegt að eiga við en jafnframt flókið og krefjandi; Að gera hús sem er bæði landamærastöð fyrir farþegarskip og opið samkomuhús á rólegum tímum er ekki einfalt mál. 

KR ark

Við höfum unnið með KR ark í 25 ár í tugum ef ekki hundruðum verkefna en sérstakalega þó fjölbýlishúsaverkefnum enda eru KR ark þekktir fyrir gott skipulag íbúða með veglegar svalir og ákveðinn einfaldleika þannig að hagkvæmt er að byggja þessi hús. Kiddi Ragg er að sjálfsögðu góður vinur okkar. Samstarfið hefur verið farsælt, gott og skemmtilegt en Kiddi Ragg mikill sagnamaður og snillingur og hefur skoðun á flestu milli himins og jarðar og ýmsu yfirskilvitlegu líka sem er ekki leiðinlegt að hlýða á og ræða.

Eignabyggð

Brunahönnun slf hefur á síðastliðnum árum unnið að mörgum verkefnum fyrir Eignabyggð. Binni bakari og synir hans eru m.a. á bak við þessi verkefni og hann kæmist líklega í heimsmetabók Guinness fyrir fjölda byggingarverkefna úr starfstétt bakara. Þetta eru hús sem eru framleidd að stórum hluta í Lettlandi og sett upp hér á landi en þetta eru hagkvæm hús að mestu úr stálvirki með steinullareiningum og trapizuþökum en einnig að hluta til steinsteypt, leyst með hagkvæmum brunatæknilegum lausnum og hagkvæmum slökkvikerfum þar sem við á.   

Center hotels

Við höfum unnið fyrir Center hotels frá því að þeir voru að innrétta Center hotels á Klapparstígnum í kringum aldamótin síðustu. Þeir byrjuðu í Hótel Skjaldbreið við Laugaveg sem við komum einnig að. Hótelið í Aðalstræti 4-8 hefur tekið miklum breytingum á síðastliðnum og stækkað mikið 10 – 15 árum og tekið yfir stærri og stærri hluta Aðalstrætis með tengingum milli húsa sem hefur verið krefjandi verkefni að leysa brunatæknilega.

Flotgólf

Við höfum unnið nokkur nokkur verkefni með Flotgólf á síðastliðnum árum, t.d. brunahönnun fyrir nýtt íþróttahús ÍR. Þá höfum við séð um brunahönnun og hönnun vatnsúðakerfa í fjölbýlishúsareitunum við Hestamýri en þetta eru þrír íbúðarhúsakjarnar hver sem eru hver og einn með sameiginlega bílageymslu.  Þetta er gríðarskemmtilegar og vandaðar íbúðir á skemmtilegum stað. Nordic office of Architectur eru arkitektar. Þá gerðum við brunahönnun fyrir fjölbýlishús á Egilsgötu 5.

Hekla

Við höfum á undanförnum árum unnið brunahönnun fyrir nýjar höfuðstöðvar Heklu í Þorraholti 2 en það hefur verið krefjandi verkefni enda um að ræða gríðarstórt mannvirki í heild sinni eða samtals rúmlega 25.000 m2 á mörgum hæðum. Cao í Praxis er arktekt. Um er að þrjú stakstæð hús ofan jarðar og fjögurra hæða kjallara undir þeim öllum sem er nýttur sem bílastæða- og þjónustuhús. Við erum einnig að brunahanna stóra dekkjageymslu í Hafnarfirði fyrir Heklu.   

Guðni Pálsson arkitekt

Við höfum unnið með Guðna Pálssyni arkitekt í 25 ár í flestum hans byggingarverkefnum og hefur það verið einstaklega gefandi samstarf enda er Guðni einn af okkar reyndustu og færustu arkitektum. Hann er ávallt að leyta nýrra og frumlegra lausna og leggur alúð í hvert einasta verkefni. Skissurnar hans Guðna eru einstakar en Guðni hugsar í formum og litum frá því hann vaknar þar til hann fer að sofa. Guðni hringir stundum oft á dag og rabbar um verkefnin og það er daufur dagur þegar maður heyrir ekki í Guðna. Hér er flott fjölbýlishús í Áshamri 52-56 sem eru þrír stórir íbúðarkjarnar í Hafnarfirði.

Eykt

Við höfum unnið mörg áhugaverð verkefni með Eykt á síðastliðnum árum. Nærtækast er að nefna bílastæðahús á átta hæðum og sambyggt tæknihús Nýja Landsspítalans. T.ark eru arkitektar. Þetta hefur verið flókið og umfangsmikið verkefni og reyndi á flest sem við höfum lært í gegnum tíðina. Við vorum einnig með brunahönnun á stóru skrifstofuhúsunum á Dalvegi 30 og 30a sem eru svo áberandi frá Reykjanesveginum. Þá vorum við með brunahönnun fyrir stóran fjólbýlishúsareit í Áshamri 12-26 í Hafnarfirði fyrir Eykt. 

JE Skjanni

Við höfum unnið með Jens og hans mönnum í JE Skjanna með hléum síðastliðin 20 ár. Við byrjuðum samstarfið með því að brunahanna Reykjavik Marina hótelið við höfnina en þá á vegum VSI. JE Skjanni er að byggja eitt áhugaverðasta fjölbýlishúsið höfuðbogarsvæðinu sem er við Vörðugötu 2 í Urriðaholti og við brunahönnuðum. Tripoli eru arkitektar. Húsið er sex hæðir og kjallari með stóru opnu miðrými sem er þó með lokað þak og það reyndi á brunatækni og brunahermun við að leysa þetta verkefni. Þá erum við með þeim í stóru verkefni á Akureyri þar sem við gerðum brunahönnun á hóteli fyrir Hilton keðjuna við Hafnargötu og Austurbrú. Samstarfið við Hilton hefur verið áhugavert og upplýsandi.

Tark

Við höfum lengi unnið með T.ark þeim Ásgeir, Ivon, Sverrir og fleiri að fjölmörgum verkefnum. Eftirminnilegast eru líklega höfuðstöðvar Arion banka við Borgartún sem sem við unnum að á öðrum vettvangi. Þetta hús er að hluta til eldra hús sem var þó gjörbreytt með tengibyggingu yfir í nýrra húsið. Þetta er stórglæsilegt hús og minnisvarði uppgangsins í bankageiranum. Þá gerðum við brunahönnun með þeim fyrir Nordica hotel á sínum tíma. Nýlegasta verkefnið með T.ark er fjölbýlishúskjarninn í Áshamri 12-26 í Hafnarfirði en Eykt voru byggingaraðili.  

Reir verk

Við höfum unnið mörg fjölbýlishúsaverkefni með Reir Verk og Nordic architecture of Offica á síðastliðnum árum. Dæmi um þessi hús eru húsin á Stefnisvogi og Þorrholti og fleiri verkefni. Reir verk eru öflugir aðilar á íbuðarhúsamarkaði.

Úti og inni arkitektar

Við eigum langa samstarfssögu við Baldur, Jón Þór og félaga á Úti og Inni arkitektum í gegnum tíðina. Stærsta verkefnið með þeim er líklega Sólvangur í Hafnarfirði en við höfum einnig verið þeim til ráðgjafar í fjölmörgum fjölbýlishúsaverkefnum og íbúðarhúsaverkefnum í gegnum tíðina.   

Bílabúð benna

Við höfum í langan tíma en með hléum unnið fyrir Benna í Bílabúð Benna. Benni er í símaskránni okkar merktur „Benni the one and only“ enda einstakur maður. Samstarfið hefur stundum verið sveiflukennt en róast með árunum og gengur vel og nú tölum við saman Íslensku með stóru Íi. Við erum með brunahönnun fyrir nýja húsið sem er verið að byggja utan um Bílabúð Benna og Porche umboðið í Krókhálsi 9. Við höfum líka verið með brunaráðgjöf fyrir Benna í mörgum öðrum húsum í gegnum tíðina, t.d. á gamla staðnum á Höfðanum og nýja húsið sem þeir eru búnir að byggja út á Fiskislóð.

Ekkert verkefni er of stórt og ekkert verkefni er of lítið
Smelltu hér til að lesa afhverju...

Yfir 2000 verkefni fyrir yfir 1000 viðskiptavini frá árinu 2014 en við höfum stundað brunahönnun og brunaráðgjöf frá árinu 1999 og höfum komið að hátt í 5000 verkefnum frá þeim tíma. Geri aðrir betur.

Við höfum komið að öllum mögulegum tegundum af brunatæknilegum verkefnum svo sem;  verslunarmiðstöðvar, þjónustuhús, vörumiðstöðvar, lagerbyggingar, dekkjalagerar, háhýsi, skrifstofubyggingar, veitingahús, hótelbyggingar, iðnaðarhús, flugeldageymslur, sérhæfður iðnaður, efnaverksmiðjur, kísilmálmverksmiðjur, fiskvinnslushús, frystihús, þvottahús, skólar, hjúkrunarheimili, sjúkrahús, flugstöðvar, samgöngumiðstöðvar, fangelsi, bankar, samkomuhús, íþróttahús, fjölbýlishús, fjölbýlishúsareitir, landbúnaðarbyggingar, reiðhallir, bílageymslur, ný og gömlul timburhús, veitingastaðir, skemmtistaðir, pöbbar o.s.frv. – eiginlega allt milli himis og jarðar í byggingargerðum og öllum notkunarflokkum.

VÍKINGUR

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Vestibulum tincidunt interdum neque, at suscipit turpis vehicula a. Mauris at dictum mauris. 

HÓTEL VELLIR

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Vestibulum tincidunt interdum neque, at suscipit turpis vehicula a. Mauris at dictum mauris. 

HAFRÓ

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Vestibulum tincidunt interdum neque, at suscipit turpis vehicula a. Mauris at dictum mauris. 

DELOITTE

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Vestibulum tincidunt interdum neque, at suscipit turpis vehicula a. Mauris at dictum mauris.