Mansard
Við höfum undanfarin 20 ár eða svo unnið fjölmörg verkefni með Jón Hrafni (Krumma) í Mansard. Krummi er svona „í hvelli maður“ eins og við og bíður ekki lengi eftir þjónustu. Þetta hafa verið alls konar verkefni í gegnum tíðina fyrir ýmis fyrirtæki og Fasteignir ríkissjóðs.
Nýjasta verkefnið er Urðarhvarf 16 sem er nýtt skammtíma hjúkrunarheimili sem lengi hefur verið beðið eftir. Þetta var tæknilega flókið verkefni og ansi margt sem þurfti að huga að allan verktímann. GG verk eru verktakar í þessu verkefni en KR ark hannaði hússkelina og við gerðum þá brunahönnun sem átti að rúma ýmsa starfsemi og það tókst.












