VSÓ

Við eigum langa og farsæla sögu með VSÓ Ráðgjöf enda búnir að vinna náið með þeim í yfir 20 ár í fjölmörgum verkefnum. Nýjasta verkefnið er samgöngumiðstöðin í Skarfabakka fyrir Faxaflóahafnir sem hefur verið gríðarskemmtilegt að eiga við en jafnframt flókið og krefjandi; Að gera hús sem er bæði landamærastöð fyrir farþegarskip og opið samkomuhús á rólegum tímum er ekki einfalt mál. BROKKR eru arkitektar sem samstarfsheiti nokkurra arkitekta. Við vorum einnig með VSÓ í nýja grunnskólanum í Skarfahlíð Hafnafirði þar sem T.ark voru arkitektar. Við höfum auk þess sinnt brunaráðgjöf í fjölmörgum verkefnum fyrir Eimskip sem VSÓ hefur sinnt í gegnum árin..